29september
Það er nú alveg smá hjónasvipur með okkur, er það ekki?

20september
Það er rétt motherfuckuz! Ég er að sárast hérna heima og er rétt að skríða fram úr rúminu núna síðan á laugardaginn! Hef ekki hugmynd um hvaða dagur er í dag! Er með 40 stiga hita, kvef, verstu hálsbólgu sem sögur fara af í evrópu og víðar! Hausverkurinn sem er að hrjá mig er líka massívt vondur, líður eiginlega bara illa.
Væri til í að einn svona djöfull myndi mæta á svæðið og sprauta mig með hverju því sem honum ditti í hug að sprauta mig með!
11september
LOKSINS!
Bolurinn minn er kominn! Þetta er án efa svalasti bolur landsins um þessar mundir og lýsir því alveg að ég svífst einskis þegar að totti er komið!

08september
Ég skil ekki fólk sem heldur að það þekki mig eitthvað, heilsar mér og reynir að tala við mig. Hey, vakniði - Ég kæri mig ekkert um að þekkja ykkur, þið eruð annaðhvort annarsflokks-kripplingar, eða sultuhundar!
06september
Vogin (23.sept - 23.okt)
Mannleg samskipti, verkefni eða viðskipti, hvað sem það er þá reynir þú til hins ýtrasta að láta það ganga. Áreiðanleiki og örlæti einkenna þig vissulega
en þegar þú verður fær um að sjá hlutina eins og þeir eru frekar en eins og þú vilt að þeir séu lærir þú að sleppa takinu, hversu sársaukafullt sem það nú er fyrir hjarta þitt, og líf þitt breytist til hins betra kæra vog en einnig kemur skýrt fram að þú lætur alls ekkert binda þig en þú stjórnast hér af Merkúríusi sem telst vera sendiboði guðanna. Merkúríus auðveldar samskipti þeirra sem fæddir eru undir stjörnu þessari. Hér kemur að sama skapi fram að þú hefur það á tilfinningunni að þú ert brotakennd/ur og forðast ábyrgð þessa dagana.
04september
Vogin (23.sept - 23.okt)
Ekki halda aftur af þér kæra vog. Ýttu óttanum burt ef hann bankar upp á hjá þér. Hér kemur fram að þú hræðist að þú sért ekki þess verð/ur að vera elskuð/elskaður en það er fjarstæða vissulega.
04september
03september
Næsta helgi verður massív! Ég, Andri og Grjónson ætlum að fara í sveitina til Andra með krossara og fjórhjól og jetski og fullt af drasli og leika okkur á landinu hans Andra. Svo er réttarball, þar sem við ætlum að mæta alveg jóðlandi og reyna við sveitapíur! Kem með meira detail þegar nær dregur!
31ágúst
Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú finnur jafnvel fyrir djúpstæðum ótta við að eitthvað leysist upp hér og á það jafnvel við um samband eða vináttubönd ef marka má vogina hérna. Þú þekkir náttúrlega framvindu og því getur þú oftar en ekki séð fyrir niðurstöðuna. Ef þú teflir á tvær hættur varðandi tilfinningar þínar ættir þú að huga fyrst og fremst að eigin þrám.
31ágúst
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég get ekki breytt,
kjark til að breyta því sem
ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
